fimmtudagur, október 28

Um daginn horfði ég á bíómynd í skjávarpa. Myndin var ekkert sérstök en ég fílaði þetta í tætlur! Það er ekkert skemmtilegt að eiga sjónvarp lengur....
Annars eru bara tvær vikur eftir af kennslu :)

mánudagur, október 25

Dagurinn í dag er búinn að vera letidagur. En nú þarf ég að taka mig á því það er brjálað að gera í skólanum.

Annars voru við með fjölskylduboð um helgina þar sem Haffi átti afmæli í vikunni og á síðustu tveimur dögum er ég búin að borða ársskammt af kökum og nammi.

Ég er búin að virkja myndahlekkinn, það er voða lítið komið þangað inn, en það verður bætt úr því seinna......

föstudagur, október 15

Would anyone want to bang you? by phobia
Name:
Favorite Food:
Wants to Bang you:
This many times:44
Quiz created with MemeGen!


Var nú eitthvað að vonast eftir einhverju öðru...........ég held það sé bara af því ég kann ekki að segja ,,innbakaðar nautalundir" á ensku (annars hefði ég sko fengið Brad Pitt!!).

Takk fyrir þátttökuna. Ég heyrði þessa sögu í tíma í skólanum (já ég var sko að fylgjast með!). Svör fólks fer víst eftir því hvernig það er alið upp (þ.e. við hvernig menningu). En flestir sem búa á vesturhveli jarðar (fólk eins og við)viljum bjarga barninu þar sem barnið er ósjálfbjarga, krúttlegt og tákn um framtíð. Nokkrir myndu bjarga makanum, en mjög fáir. Þeir sem koma frá austurhveli jarðar myndu hins vegar bregðast allt öðruvísi við. Ef t.d. afríkubúi væri spurður að þessari sömu spurningu myndi hann vera líklegri til að vilja bjarga mömmu sinni þar sem að hann getur eignast nýjan maka, annað barn en hann getur aldrei eignast nýja mömmu :)

þriðjudagur, október 12

Hér kemur lítil saga:
Ímyndaðu þér að þú eigir maka sem þú ert yfir þig ástfangin/n af og þið ákveðið að fara í siglingu á skemmtiferðaskipi. Þið eruð nýbúin að eignast barn og auðvitað viljið þið taka það með ykkur. Þú ákveður að taka mömmu þína líka með til þess að passa barnið þannig þið getið gert það sem þið viljið. Síðan sekkur skipið....... Þú þarft að ákveða hverjum þú bjargar (þú getur aðeins bjargað einni manneskju). Hver verður fyrir valinu (makinn sem þú elskar/litla, sæta barnið sem er nýkomið í heiminn eða mömmuna sem ól þig upp)?

laugardagur, október 9

Nú er búið að eyðileggja fyrir mér alla helgina!!! Var að skoða skólasíðuna og kennarinn er búinn að láta inn einkunnina fyrir prófið sem ég klúðraði í gær :( Mér finnst að það ætti að vera einhver regla um að kennarar mættu ekki senda manni póst um helgar!

fimmtudagur, október 7

Nú er önnin ca. hálfnuð í skólanum og miðannarprófin að hellast yfir. Ég var í prófi í gær og held að mér hafi bara gengið nokkuð vel (vonandi). Síðan er próf á morgun og verð ég því að læra allt um ársreikninga í dag (væri alveg til í að vera að gera eitthvað annað).....

þriðjudagur, október 5

Það er til svo mikið af vitleysingum! http://www.visir.is/?PageID=38&NewsID=15701

mánudagur, október 4

Ég er ógeðslega þreytt eftir helgina. Nú er systir mín gift kona! Veislan var rosa flott og allir skemmtu sér vel. En ég er fegin að þetta er búið (ég hef ákveðið að ef ég skildi einhvern tímann gifta mig þá verður ekki stór veisla og ekkert stress).